Svik við land og þjóð!

Ég vil fá nöfn allra þingmanna sem greiddu atkvæði með þessu og líka aumingjana í Framsókn sem sátu hjá, þvílíkar lyddur og umingjar. Þjóðin var seld í í ánauð, ég er hættur að taka þátt í þessu ætla skrá mig sem verktaka í vinnu og halda eftir öllum opinberum gjöldum, ÉG BORGA EKKI!!
mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kassahausar kerfissins

Það er óendanlega gaman að fylgjast með sumum bloggurum hérna, þeir eru að fara á límingunum og sumir eruð guðsblessunarlega við að springa á samskeytunum yfir því að einhverjir skuli voga sér út fyrir rammann og mótmæla á óhefðbundinn hátt og bjóða hefðbundum aðferðum langt nef í viðleitni sinni við að berjast fyrir sannfæringu sinni, fyrir mína parta er ég ánægður með þetta fólk, það er greinilega ekki til sölu einsog flestallir í þessu þjóðfélagi.

 


mbl.is Sex mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í skugga sprengjunar

Ég man þessa tíð, endalausar vangaveltur um afdrif mannkyns EF sprengjunum væri skotið á loft. Stundum varð maður smeykur viðurkenni það.

Man eftir einni bók sem ég las " Baneitrað samband á Njálsgötuni " man því miður ekki nafn höfundar eða útgáfuártal en hún lýsti á stundum vel hugarástandi þess sem óttaðist elliæra og visna putta þeirra sem réðu "hnappnum" hættulega.


mbl.is Horfið ekki í ljósið!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlakkar í hrunaflokkunum

Mér sýnist að stuðningsfólk spillingar flokkana keppist við að lýsa yfir andláti Borgarahreyfingunar en ég hef nú ekki séð neitt dánarvottorð enþá. Það mætti halda að það sem sé í gangi innan XO hafi aldrei gerst hér áður, veit ekki betur en að sjálfstæðisFLokkurinn hafi klofnað áður og út frá því sprottið aðrir flokkar mislanglífir þó. Það má sjálfsagt telja aðra flokka til en ég býst við að fólk geri sér grein fyrir því við hvað sé átt, það er ógeðfellt að sjá sum bloggin hérna og rætnina sem þar er á bakvið, er þetta hin eina sanna íslenska þjóðarsál, að keppast við að níða skóinn af hvort öðru ?
mbl.is Þingmenn okkar hafa brugðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara Lögreglan ?

Ég ætla ekki að tjá mig um boðaðar breytingar á vöktum lögregluþjóna eða um téðar skipulagsbreytingar á embættum um land allt, það er innanbúðarmál sem þeir verða að leysa á farsælan hátt. En um þann boðaða niðurskurð á fjárveitingu til málaflokkarins vil ég segja það eitt, auðvitað er þetta fúlt og ömurlegt að mögulega þurfi að fækka lögregluþjónum eða að það þurfi að grípa til einhverra kjaraskerðinga en málið er að það hafa allar stéttir þurft að taka slíkar skerðingar á sig ekki bara lögreglan, ekki sé ég starfsmenn menntakerfissins eða heilbrigðisstéttarinnar í blöðum dagsdaglega liggur við úttala sig um þær hörmungar sem slíkt hefur á þeirra  vinnu umhverfi.

Things are tough all over, ekki bara hjá lögreglunni.


mbl.is Engin lögregla án lögreglumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður !!

Ánægður með hann Hugo vin minn, svona á að gera þetta!!
mbl.is Golf ekki íþrótt fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt

Gott að sjá að það eru einhverjir sem standa við sína sannfæringu og eru tilbúnir að standa og falla með henni, alltof margir sem eru til sölu hérna.
mbl.is Hættu mótmælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískinnungur

"þetta eru fráleitir frasar og ekki svaraverðir"

Mig langar að vita afhverju er öllu því sem Lögreglan segir tekið sem heilögum sannleik og hún þarf ekki að rökstyðja það né sanna á neinn hátt. Ég hef sjálfur horft á lögregluna ljúga sökum uppá mótmælendur til að taka þá úr umferð vegna þess að þeir (mótmælendur) voru lögregluni á móti skapi, það eina sem lögreglan þarf að gera er að segja að viðkomandi hafi neitað að fara að fyrirmælum, þetta er of mikið vald sem lögreglan hefur og hún klárlega misnotar það. Ég veit til þess að a.m.k 13 mótmælendur lögðu fram kæru á hendur lögregluni fyrir meint harðræði síðastliðin vetur en engar ákærur hafa verið gefnar út einfaldlega vegna þess að þær stoppa allar hjá ríkissaksóknara og eru settar undir stól. Ef að þetta eru svo fráleitir ásakanir hjá mótmælendum þá hlýt ég að að setja efasemdarmerki við þær ásakanir lögreglu að sparkað hafi verið í höfuð lögregluþjóns því ekkert hefur komið fram sem styður þá fullyrðingu.


mbl.is Ásakanir Saving Iceland ekki svara verðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband